Prentvæn útgáfa
Hópverkefni
Bók verður til
- Hvaða efni þurfti til að búa til bók á miðöldum? Skoðið Uppskriftabók Árnastofnunar þar sem fjallað er um gerð handrits frá skinnaverkun til skriftar.
- Búið til lista yfir þá sem unnu við gerð handrits á miðöldum (skinnaverkanda, skrifara, myndlistarmann og bókbindara) og það sem hver og einn þurfti að kunna.
- Handrit voru í nokkrum stærðum. Finnið heiti hverrar stærðar og merkið inn á samsvarandi pappírsstærðir í samvinnu við bekkinn og kennarann og hengið upp á vegg. Skoðið mismunandi stærðir handrita undir Skinn skorið og brotið.
- Hvað var gert við skinnið ef rifur eða göt mynduðust við verkun þess og hvers vegna?
Til kennarans
Gefa má nemendum eftirfarandi vísbendingar:
Skinnaverkandi - verkar skinnið í bókina en hvernig?
Skrifari - undirbýr verkað bókfellið; sker skækla af og sníður síður (e.t.v. í verkahring sérstakrar stéttar), undirbýr skrifflöt með því að pússa skinnið með vikursteini og marka fyrir línum og dálkum. Saumar saman síður í kver, skrifar textann og e.t.v. rauðar kaflafyrirsagnir. Sker pennann og sýður e.t.v. blekið.
Lýsandi eða myndlistarmaður - lýsir eða skreytir bókina með upphafsstöfum eða myndstöfum og skrifar e.t.v. rauðar kaflafyrirsagnir. Blandar liti og bindiefni.
Bókbindari - saumar kver á þvengi og festir á tréspjöld eða saumar inn í selskinn.
Athugið að á fámennum stöðum gæti verið að sama fólkið hafi gengið í öll störf er lutu að bókagerð. Íslensk klaustur voru t.a.m. oft fámenn miðað við það sem gerðist í öðrum löndum og því er alls óvíst að sama verkaskipting hafi ríkt hér á landi og þekktist á meginlandi Evrópu.
Skoðið síðuna Handverkið, einkum undirkaflana Skinnaverkun, Bókin undirbúin, Pennar, blek og litir og Bókband sem og Uppskriftabók Árnastofnunar. Skoðið einnig síðuna Bókaskreytingar. Munið að smella á Viltu vita meira? á síðunum Handverkið, Skinnaverkun og Bókin undirbúin
|