Prentvæn útgáfa
Hópverkefni
Lestur, áhorf og tölvunotkun
A. Skipta má bekknum í hópa sem gera könnun á ólíkum sviðum:
-
Gerið könnun á bóklestri bekkjarfélaganna og gerið grein fyrir bóklestri og bókagjöfum. Setjið niðurstöðurnar fram í köku- eða súluriti, með glærukynningu eða á annan myndrænan hátt.
-
Athugið sjónvarpsáhorf og kvikmyndir bekkjarfélaganna og ræðið almennt um myndaáhorf og kvikmyndir sem gjafir. Setjið niðurstöðurnar fram í köku- eða súluriti, með glærukynningu eða á annan myndrænan hátt.
-
Kannið tölvunotkun innan bekkjarins, bæði í leik og námi. Spyrjið líka um gjafir s.s. leiki, dvd-diska og þess háttar. Setjið niðurstöðurnar fram í köku- eða súluriti, með glærukynningu eða á annan myndrænan hátt.
B. Hóparnir kynna niðurstöðurnar, þ. á m. eftirfarandi:
-
Hvað fá margir bækur, geisladiska, dvd-diska eða tölvuleiki að gjöf?
-
Hvað fara nemendur oft í bíó að meðaltali í mánuði?
-
Hvað lesa þeir margar bækur á ári?
- Hvað eyða þeir miklum tíma á netinu á viku?
|