Prentvæn útgáfa
Verkefni
Rím og ljóðstafir
- Hvaða hlutverki gegna ljóðstafir og rím og hvar kemur það helst fyrir? Hvað einkennir hefðbundinn kveðskap?
- Hvernig voru vísur settar upp í handritum? Var auðvelt að sjá skil á milli vísna eða varð að styðjast við bragreglur til að greina eina vísu frá annarri? Skoðið vísu úr Hávamálum.
- Skoðið ljóð undir frjálsu formi (atómskáldskap), eimir ekki sums staðar eftir af ljóðstafahefðinni þar? Skoðið líka dægurlagatexta og ljóðasöfn á borð við Ljóðsprota, Ljóðspor og Ljóðspegla.
- Hvaða tilgangi þjóna ljóðstafir í auglýsingum? Athugið auglýsingar í útvarpi, sjónvarpi og blöðum. Skoðið sérstaklega tímaritið Séð og heyrt sem notar ljóðstafi í miklum mæli og veltið fyrir ykkur ástæðum. Skoðið einnig málshætti, skrifið niður eða flettið upp í málsháttaorðabók og athugið hvort þar sé að finna ljóðstafi.
Til kennarans
Gott er að kynna fornan kveðskap, s.s. Hávamál eða Völuspá fyrir nemendum, og benda á notkun ljóðstafa. Nota má ljóðadæmi til að sýna samfellu í notkun ljóðstafa frá alda öðli.Við þennan samanburð er vert að hafa í huga sérstöðu ferskeytlunnar í íslenskum kveðskap og líftíma hennar allt fram til okkar daga.
|