|
Prentvæn útgáfa
Verkefni
Um gildi handrita
-
Hvað kallast þær sögur sem eldast vel? Eldast allar sögur vel?
-
Hvaða gildi hafði innihald handritanna, s.s. lögbóka, fræðibóka, sagna og kvæðabóka, fyrir fólk sem uppi var á þeim tíma sem þau voru skrifuð?
-
Hvaða gildi höfðu bækurnar sjálfar, t.d. í tengslum við nám? Athugið að á þessum tíma var lítið um sérstakar námsbækur eða barnabækur.
-
Hvaða gildi hefur innihald handritanna fyrir nútímafólk? Teljið upp nokkrar fræðigreinar sem gætu hafa nýtt sér handritin við rannsóknir og þá í hvaða tilgangi.
- Hvað má ráða af útliti handritanna um samfélagið til forna? Hvað segir t.d. ýmis konar spássíukrot okkur?
|
|
|