Prentvæn útgáfa
Þemaverkefni
Mismunandi bókaframleiðsla
Bekknum er skipt í hópa. Hver hópur á að afla upplýsinga um hver býr til efnið í eftirfarandi tegundir bóka og hverjir koma að útgáfunni:
1. Handskrifuð skinnbók
2. Prentuð bók úr pappír
3. Vefræn útgáfa
Fjallið einnig um hver skrifar" og hvernig?
Úrvinnsla
Mikilvægt er að einhver kynning sé á niðurstöðu hópanna sem sýnir hvað er líkt og ólíkt við bókagerðina" hverju sinni. Samanburðurinn þyrfti að leiða í ljós muninn á handverki og fjöldaframleiðslu annars vegar og sérhæfðri verkkunnáttu og almennri hins vegar. Ef kunnátta og aðstæður leyfa gæti hver hópur útbúið stuttmynd um sína bókaframleiðslu.
|