Um gildi handrita
Hvað kallast þær sögur sem eldast vel? Eldast allar sögur vel?
Hvaða gildi hafði innihald handritanna, s.s. lögbóka, fræðibóka, sagna og kvæðabóka, fyrir fólk sem uppi var á þeim tíma sem þau voru skrifuð?
Hvaða gildi höfðu bækurnar sjálfar, t.d. í tengslum við nám? Athugið að á þessum tíma var lítið um sérstakar námsbækur eða barnabækur.
Hvaða gildi hefur innihald handritanna fyrir nútímafólk? Teljið upp nokkrar fræðigreinar sem gætu hafa nýtt sér handritin við rannsóknir og þá í hvaða tilgangi.
© LogS
Prentað af fræðsluvefnum Handritin heima