| FORSÍÐA | SAGAN | HANDRITIÐ | KENNSLUEFNIÐ | MYNDASAFNIÐ | VEFTRÉ |
 
Forsíða > Kennsluefnið > Um miðlun sagna > Sagnaefni og myndmiðlar > Þemaverkefni
 
    Miðlun að fornu og nýju »
Bókaframleiðsla »
 
  Um miðlun sagna »
  Sögð og skrifuð saga »
  Fjölbreytt sagnalist »
  Kveðskapur »
 
Lestur af bók »    
 
Afþreying fyrr og nú »
Barnaefni »
 
Sagnaefni og myndmiðlar »
    Umræðuefni » 
 
    Verkefni » 
      Ritunarverkefni »
    Þemaverkefni »
 
   Tilvísunarefni á vef »
 
 
 
   
Prentvæn útgáfa

Þemaverkefni

Kvöldskemmtanir fyrr og nú
Skiptið bekknum í nokkra hópa og látið hvern hóp velja sér einn skrifara sem festir á blað niðurstöður úr hverjum lið. Í lokin greinir hver hópur frá rökstuddum niðurstöðum og bekkurinn ræðir málin nánar. Kynning getur farið fram á glæru eða í Power point og verið flutt munnlega. Þeir sem treysta sér til gera það án stuðnings við ritað mál.


Aflið upplýsinga um eina af þremur tegundum kvöldskemmtana til forna:

1. Sagnamiðlun

2. Kveðskapur

3. Bóklestur

Hafið eftirfarandi í huga við lausn verkefnisins
  • Hvernig sögur voru sagðar eða lesnar og hvers konar kvæði voru flutt?

  • Hvert var efni þeirra?

  • Hver stjórnaði skemmtuninni?

  • Hvar fór hún fram?

  • Hverjir voru áheyrendur?

Til kennarans
Nálgunin felst í að hvetja nemendur til umræðna, láta þá afla sér heimilda, vinna úr þeim og kynna niðurstöður sínar.