| FORSÍÐA | SAGAN | HANDRITIÐ | KENNSLUEFNIÐ | MYNDASAFNIÐ | VEFTRÉ |
 
Forsíða > Kennsluefnið > Miðlun að fornu og nýju > Munnmenntir > Verkefni
 
  Miðlun að fornu og nýju »
Miðlun »
 
Upplýsingasamfélagið »
Munnmenntir »
    Umræðuefni »
    Verkefni »
    Ritunarverkefni »
      Tilvísunarefni á vef »
  Ritlist »
Bókaframleiðsla »
Um miðlun sagna »
   
   
Prentvæn útgáfa

Verkefni

Að muna texta orðrétt

1. Eftirfarandi texti er úr Grágás, gömlu Þjóðveldislögunum í handriti frá því um 1260:

Hverr maðr á reka fyrir landi sínu viðar og hvala og sela fiska og fugla og þara
nema þar sé sölum selt frá landi eða gefið eða goldið öðrum manni.

Ljóðstafirnir eru feitletraðir. Hvaða tilgangi þjóna þeir í óbundnum texta? Prófið að lesa textann upphátt og takið eftir hrynjandinni.

2. Setjið sams konar orð eða samheiti í stað feitletraða orðsins í eftirfarandi orðapörum. Orðið þarf að byrja á öðrum staf en fyrra orðið.

fiska - fugla (no.) máva, lunda
sölum - selt (so. selja) afhenda,
gefið - goldið (so. gjalda) borga, rétta

Prófið að lesa textann aftur. Hvað hefur breyst? Er hrynjandin öðru vísi?

3. Hvaða samtengingar er að finna í textanum? Hverjar þeirra eru endurteknar og hvers vegna?

Til kennarans
Svörin ættu að varpa nokkru ljósi á það hvernig minnistækni var notuð til forna til að varðveita texta óbrenglaða. Ákveðin hrynjandi fæst með samtengingunni og sem bindur saman þrjú og þrjú orð í upptalningunni. Benda má nemendum á að lögsögumenn sögðu upp lögin munnlega og varðveittu þau í minni þar til ritmenning hélt innreið sína með kristni og kirkju. Mikilvægt var að lagatexti varðveittist orðréttur eins og dæmið úr Grágás sýnir. Í þessu samhengi má benda nemendum á að orðrétt frásögn hafi ekki skipt jafnmiklu máli þegar sögur voru sagðar.


Bein endursögn

  1. Veljið ykkur tvær setningar úr Íslendinga sögunni sem þið eruð að lesa eða valinni sögu. Endurskrifið setningarnar og notið orð sem stuðla og samtengingar eins og gert er í dæminu úr Grágás.
  2. Leggið textann á minnið og farið með hann fyrir sessunaut. Mikilvægt er að textinn komist orðrétt til skila, ekki er nóg að muna efnisatriði. Reynið þetta svo með lengri texta.
  3. Skiptist á texta og leggið á minnið.
  4. Skrifið kennaranum ykkar tölvupóst og segið honum frá því hvort og hvernig aðferðin í verkefninu Bein endursögn hjálpaði ykkur að muna textann.


Minnistækni í daglegu lífi

  1. Hvaða minnistækni beitið þið þegar þið þurfið að muna eitthvað?

  2. Þekkið þið minnisaðferðir sem krefjast ekki notkunar tækja?

  3. Hvaða aðferðir notið þið til að muna námsefni fyrir próf? Lærið þið t.d. utanbókar eða hreinskrifið glósurnar ykkar?

  4. Hvaða notagildi ætli bókin hafi haft fyrir fólk sem áður treysti á minni sitt?

  5.