| FORSÍÐA | SAGAN | HANDRITIÐ | KENNSLUEFNIÐ | MYNDASAFNIÐ | VEFTRÉ |
 
Forsíða > Kennsluefnið > Um miðlun sagna > Kveðskapur > Þemaverkefni
 
    Miðlun að fornu og nýju »
Bókaframleiðsla »
 
  Um miðlun sagna »
  Sögð og skrifuð saga »
  Fjölbreytt sagnalist »
  Kveðskapur »
 
    Umræðuefni »
 
    Verkefni »
    Hópverkefni »
 
    Þemaverkefni »
 
   Tilvísunarefni á vef »
 
Lestur af bók »
 
Afþreying fyrr og nú »
 
Barnaefni »
  Sagnaefni og myndmiðlar »
 
   
Prentvæn útgáfa

Þemaverkefni

Rímur og rapp

Hlustið á geisladiska með rímum (eða tóndæmi af vefnum) og veltið fyrir ykkur skyldleika þeirra við tónlist samtímans.

  1. Hvað eiga rímur og rapp helst sameiginlegt? Nefnið nokkur atriði.

  2. Frá hverju er sagt í rímum, hvert er viðfangefni þeirra? Hvað er fjallað um í rapp-textum?

  3. Setjið bút úr rímu í rapp-gerð og takið upp. Berið saman hrynjandina í kveðnu rímunni og svo í rapp-gerðinni. Er mikill munur?

Til kennarans
Tilvalið er að nota geisladiskana Raddir, Hlýði menn fræði mínu eða Rímur og rapp til að gefa nemendum sýnishorn af kveðskap fyrri alda. Textar efnisins á fyrrnefndu diskunum eru prentaðir í meðfylgjandi bæklingum og sama máli gegnir um hluta textanna á Rímum og rappi. Í bæklingnum sem fylgir Röddum er nokkuð fjallað um tóntegundir og stemmur í rímnakveðskap og kvæðaflutningi þeim sem dæmi eru tekin af á diskinum. Tilvalið er fyrir þá sem þekkingu hafa á tónfræði að bæta þeim þætti við umfjöllunina. Auk þess er unnið með ákveðna tengingu milli rímnahefðarinnar hér á landi og rapptónlistar á diskinum Rímur og rapp. Rapptónlist byggist eins og rímur á hrynjandi í flutningi og endarími, flutningurinn er sem sagt fremur kveðandi en söngur.