| FORSÍÐA | SAGAN | HANDRITIÐ | KENNSLUEFNIÐ | MYNDASAFNIÐ | VEFTRÉ |
 
Forsíða > Kennsluefnið > Um miðlun sagna > Kveðskapur > Hópverkefni
 
    Miðlun að fornu og nýju »
Bókaframleiðsla »
 
  Um miðlun sagna »
  Sögð og skrifuð saga »
  Fjölbreytt sagnalist »
  Kveðskapur »
 
    Umræðuefni »
 
    Verkefni »
    Hópverkefni »
 
    Þemaverkefni »
 
    Tilvísunarefni á vef»
 
Lestur af bók »
 
Afþreying fyrr og nú »
 
Barnaefni »
  Sagnaefni og myndmiðlar »
 
   
Prentvæn útgáfa

Hópverkefni

Þrymskviða í máli og myndum
Gamankvæðið Þrymskviða er eitt eddukvæðanna. Í kvæðinu skiptast á frásögn og samræður (sviðsetningar) og er það því kjörið til leiklestrar. Sama efni má finna í teiknimyndasögu sem ber nafnið Hamarsheimt en það gæti hentað þeim sem eiga erfitt með að lesa forna texta.

  1. Veljið nemendur í hlutverkin í Þrymskviðu og leiklesið kvæðið í bekknum. Ræðið hvort kvæðið hafi verið leikið eða lesið á sínum tíma þegar það var flutt á sagnaskemmtunum.

  2. Endurskrifið textann á nútímalegri íslensku, staðsetjið atburðarásina í samtímanum og flytjið kvæðið á þann hátt. Ef vill má fyrst segja stuttlega frá Þrymskviðu og ástæðu þess að þrumuguðinn Þór klæðist kvenfötum í inngangi að leikgerðinni.

Til kennarans
Skemmtileg hreyfimyndasaga úr Þrymskviðu er aðgengileg á netinu. Við hana eru orðskýringar sem gott er að styðjast við ef orðfærið reynist nemendum erfitt.