Hversu langt aftur haldið þið að sú hefð nái að segja sögur? Um hvað gæti fyrsta sagan" hafa verið?
Hafið þið sagt einhverjar sögur í dag? T.d. frá atburðum dagsins, skemmtilegu eða vandræðalegu atviki, brandara eða slúðri eða lengri sögur, s.s. ferða- eða reynslusögur.
Hvernig sögur segið þið helst? Hafið í huga hvort þið segið ólíkar sögur vinum ykkar og fjölskyldu.