Prentvæn útgáfa
Heynesbók
 |
|
Maður teymir nautgrip, e.t.v til slátrunar. |
Lögbók frá 15. öld
Á spássíum íslenskra handrita má víða finna alls kyns myndefni, allt frá viðvaningslegu kroti og eftiröpun, til mynda sem greinilega eru gerðar af hæfileikaríkum teiknurum. Fáar bækur eru jafn mikið skreyttar fjölbreyttum og litskrúðugum mannlífsteikningum og lítið Jónsbókarhandrit frá því undir lok 15. aldar sem kennt er við bæinn Heynes. Nánast hver síða Heynesbókar AM 147 4to er nýtt til hins ýtrasta þar sem spássíumyndir prýða þann hluta síðunnar sem ekki inniheldur texta.
Á spássíum eru myndir sem sýna gamla þjóðlífshætti og líf alþýðunnar, s.s. slátrun baulu, öldrykkju fólks, skipaferðir, hesta- og hundaat, heyannir og margt fleira. Myndir eins og þessar hafa heimildagildi því þær geta sagt okkur menningarsögu, af þeim má til dæmis álykta um klæðaburð fólks og lifnaðarhætti. Auk mannlífsmynda skjóta upp kollinum ýmsar kynjaskepnur hér og hvar. Á þessari síðu eru örfá dæmi um þær fjölmörgu skemmtilegu spássíumyndir sem finna má í Heynesbók.
 |
 |
|
|
Á myndinni er nýbúið að slátra baulu, undir henni stendur skrifað: dauð er baula. |
Mælingar og mælitæki. Við fyrstu myndina stendur: rett er stikan, við þá næstu: rangur pundari og þá þriðju: þetta er skjóla. |
 |
 |
|
|
Kona liggur út af með lokuð augu og önnur kemur færandi hendi með ölkönnu. Undir liggjandi konunni er skrifað: ek get nu eigi drukkit lengra. |
Maður liggur út af í fleti og skýlir augum sínum með annarri hendi. Annar situr með lokuð augun, þreytulegur að sjá. Undir liggjandi manninum er skrifað: Hér ligg ek drukkinn og hinum sitjandi: Hér sit ek sofandi og fordrukkinn. |
|