Að skrifa upp handrit
A) Skrifið orðrétt upp hálfa síðu úr Íslendinga sögunni sem þið eruð að lesa eða stuttan kafla úr valinni sögu.Notið autt blað og veljið stærð eftir því hversu stór bókin á að vera (flestar Íslendinga sögur eru í 4to stærð).
Merkið fyrir línum, spássíum og e.t.v. dálkum með reglustiku
Skiljið eftir pláss fyrir upphafsstaf/myndstaf og kaflafyrirsögn
Skrifið með penna
Notið fornar aðferðir til að leiðrétta vitleysur, notið ekki tippex!
Notið a.m.k. 5 tegundir styttinga og banda
Teiknið og litið upphafsstaf/myndstaf
B) Takið tímann. Hvað tekur langan tíma að handskrifa eina línu? Gefum okkur að á hverri síðu séu 14 línur og að bókin verði 76 síður. Hvað tekur langan tíma að skrifa bókina?
Um miðlun verkkunnáttu
Til kennarans
Verkkunnáttu er miðlað frá manni til manns á þessum tíma og því hafa Íslendingar þurft að læra handtökin af erlendum mönnum í upphafi ritaldar. Í svarta dauða gæti vel verið að þeir sem kunnu best til verka hafi dáið drottni sínum. Handrit sem talin eru skrifuð eftir þann tíma eru gerð úr mun lakara bókfelli. Einnig má hugsa sér að í kjölfar faraldursins sem felldi um þriðjung þjóðarinnar hafi efnahagur landsins verið í lægð þannig að í stað þess að flytja inn skinn hafi Íslendingar neyðst til að nota eigin framleiðslu. En hér er eingöngu um vangaveltur að ræða og allt eins líklegt að á Íslandi hafi bæði verið stétt atvinnuskrifara og fólk sem kunni til verka við bókfellsgerð.
© LogS
Prentað af fræðsluvefnum Handritin heima