Arafræði

Hann Ari var fróður, svo feiknalegur sjóður

af fræðum að útfyrir tók.
Og biskupum þótti hann svo þarfur og góður
að þeir fóru að rella um bók

Og Ari greip fjöðrina og sendi þeim sýni
og Sæmundi af spaklegri mennt.
Með háværum kröfum um heimildarýni
var handritið endursent:

- Stórvirkur ertu að stela og safna
með stálminni og rúmgóðan haus,
en vandinn er mestur að velja og hafna
og vera ekki dómgreindarlaus

En Ari hann var ekki öldungis geldur
og aðferðin þróaðist hratt:
- það sem sannara reynist það höfum við heldur
ef hvorugt er satt

Þórarinn Eldjárn (Ljóðspor, bls. 61)