Lögbækur
Lögbækur geyma gjarnan fjölda skreytinga í formi upphafsstafa eða myndstafa. Lýsingarnar tengjast oft efni bókanna, lagaákvæða eða lagabálka. Þó myndirnar séu misjafnar milli handrita hvað varðar aldur, stíl og liti er myndefnið oft hið sama. Þær lýsa dómsmálum og sýna glæp og refsingu, t.d. mann með sauð á bakinu sem bíður þess að vera hengdur við upphaf þjófabálks. Mynd af hvalskurði er einnig algeng við upphaf rekabálkar þar sem fjallað er um ýmiss konar reka, s.s. hvalreka. Hér fyrir neðan eru sýnishorn sex myndstafa úr fimm lögbókum.
Myndstafur við þjófabálk í Jónsbókarhandritinu GKS 3269a 4to frá 14. öld. | Myndstafur við þjófabálk í Jónsbókarhandritinu AM 127 4to. | Úr handritinu GKS 3269b 4to frá 14. öld. |
Myndstafur úr Jónsbókinni Am 132 4to. | Úr handritinu GKS 3269b 4to frá 14. öld. | Svalbarðsbók AM 343 fol. frá því um miðja 14. öld. |
© LogS
Prentað af fræðsluvefnum Handritin heima