Verkefni
Fréttir, annálar og bóklaust samfélag
- Teljið upp nokkur erindi sem hægt er að sinna á netinu í stað þess að þurfa að fara á staðinn. Finnið líka vinsælt fréttaefni á vefmiðli og athugið hversu hratt nýjar fréttir berast.
- Hvernig ætli fréttir hafi borist til forna? Annálar voru eins konar fréttayfirlit yfir atburði ársins, sbr. innlendir og erlendir fréttaannálar um hver áramót.
- Hvernig er best að afla upplýsinga um skóla, land og þjóð ef einhvern langar að fara til náms í Argentínu eða heimsækja landið? En til að fá góða uppskrift af argentískum rétti?
- Hvernig ætli upplýsingum um fjarlæga staði hafi verið miðlað í bóklausu samfélagi? Hvernig fékk fólk mataruppskriftir eða verklýsingar fyrir tíma ritaldar?
© LogS
Prentað af fræðsluvefnum Handritin heima