Bókamarkaður
Hverjir ákváðu hvað var skrifað niður á skinn?
Ætli það hafi breyst með tilkomu pappírs og prentverks?
Hingað bárust erlendar bækur, m.a. kirkjubækur. Ætli íslenskar bækur hafi verið fluttar út til útlanda?
Hvað gæti hafa gert það að verkum?
Voru norrænu tungumálin e.t.v. skyldari á þessum tíma?
Hvað ræður bókagerð samtímans?
Til kennarans
Tilvalið er að rekja helstu atriði í sögu ritlistar hér á landi og taka saman hugleiðingar nemenda um bókamarkað í fortíð, nútíð og framtíð. Viðfangsefnið tengist Mályrkju III en þar er að finna umfjöllun um forníslensku og nútímamál á bls. 200-201, skyldleika mála á bls. 207 og hljóðkerfi til forna á bls. 213.
© LogS
Prentað af fræðsluvefnum Handritin heima