| FORSÍÐA | SAGAN | HANDRITIÐ | KENNSLUEFNIÐ | MYNDASAFNIÐ | VEFTRÉ |
 
Forsíða > Kennsluefnið > Miðlun að fornu og nýju > Upplýsingasamfélagið > Ritunarverkefni
 
  Miðlun að fornu og nýju »
  Miðlun »
Upplýsingasamfélagið »   
    Umræðuefni »
    Verkefni »
    Ritunarverkefni »
Munnmenntir » 
  Ritlist »
Bókaframleiðsla »
Um miðlun sagna »
     
   
   
Prentvæn útgáfa

Ritunarverkefni

Fréttatilkynning eða viðtal við fjölmiðlafólk

Skrifið fréttatilkynningu um fyrirtækið eða takið viðtal við:

  • Handverksmanninn Kálf Sveinsson sem er nýkominn frá Bretalandi eftir að hafa numið bókfellsgerð hjá merkasta skinnameistara þar í landi, hinum franskættaða L'Ingua Pergamentusi. Kálfur hefur sett á laggirnar bókastofuna Besta skinn sem útvegar fagmönnum sem áhugamönnum allt til handritunar og bókagerðar. Að auki munu bróðir hans, Skrif-Finnur, og kona, Lína Bókfells, taka að sér skjalaskrif, bókritun og myndskreytingar gegn hóflegu gjaldi.

  • Ritstjórann, Bylgju Símonar, nýútskrifaðan fjölmiðlafræðing sem opnaði á dögunum nýjan og öflugan netmiðil olyginn.is sem er rekinn í samstarfi við erlendar fréttastofur um víða veröld. Markmið Bylgju er að Ólyginn verði fyrstur með fréttirnar allan sólarhringinn og auglýsir hún fréttavefinn undir slagorðinu: Ólyginn sagði mér. Samstarfsmenn Bylgju við vefinn eru tölvunarfræðingurinn Hugrún Skjáfells og blaðamaðurinn Dagur Moggason.